Munur á milli breytinga „Fjallamennska 2“

Úr Kvika HSSR
Stökkva á: flakk, leita
 
Lína 15: Lína 15:
 
** [[Fjallamennska/Bergtryggingar]]
 
** [[Fjallamennska/Bergtryggingar]]
 
** [[Fjallamennska/Ístryggingar]]
 
** [[Fjallamennska/Ístryggingar]]
 +
* [[Fjallamennska/Ferðamennska á jökli]]
 
* [[Fjallamennska/Ferli klifurs]]
 
* [[Fjallamennska/Ferli klifurs]]
 
** [[Fjallamennska/Ofanvaðsklifur]]
 
** [[Fjallamennska/Ofanvaðsklifur]]

Núverandi breyting frá og með 29. mars 2015 kl. 19:30

Forkröfurnar eru:

Gerðir klifurs

  • Jökull
  • Alpabrölt
  • Klettaklifur
  • Ísklifur

Efnisatriði

Búnaður

Æfingar námskeiðsins fara að stórum hluta fram úti og því þurfið þið að klæða ykkur eftir veðri og vindum. Athugið sérstaklega að vera í góðum skóm sem henta til broddagöngu. Það er nauðsynlegt að þið yfirfarið búnaðinn ykkar áður en þið mætið á námskeiðið og gangið úr skugga um að allt sé heilt; broddar passi á skóna sem þið notið og nýjar rafhlöður séu í ýlinum.

Við verðum mikið utandyra í fjalllendi en ekki á stöðugri hreyfingu. Gætið þess að vera klædd fyrir hvað það veður sem búast má við. Það þýðir hlý föt (ullarlag, ull eða flís og svo skel yst). Við verðum hvort tveggja á ferðinni sem og stopp í spjalli svo það er gott að vera með eitthvað hlýtt (t.d. dúnúlpu) til að skella sér í þegar við hættum að hreyfa okkur. Hitabrúsi er ekki óvitlaus og nesti er best að hafa undirbúið.

Höfuðljós, áttaviti (GPS ef mögulegt er) eiga að vera með í hverri ferð. Sólgleraugu og sólarvörn eru gagnleg og eyrnatappar ef fólk á erfitt með að sofa í hrotukór.

Þegar komið er aftur í skála er gott að eiga þurran og hlýjan fatnað til skiptana. Gætið þess þó að þið þurfið mögulega að bera búnað í skála einhverja vegalengd en almennt er nóg að geta pakkað dagbúnaði.

Sértækur fjallamennskubúnaður

Það er ýmislegt sem þið þurfið að hafa meðferðis á námskeiðið. Þetta sem á eftir fer er lágmarksbúnaður og algjör krafa á að vera með. Sumt kunnið þið að eiga, annað getið þið fengið lánað en afganginn þurfið þið að kaupa.

  • snjóflóðaýlir, skófla og snjóflóðastöng
    Þetta er hin svokallaða „Heilaga þrenning“ fjallafólks og á ætíð að vera með í för þegar hinn minnsti möguleiki er á snjóflóðum. Mikilvægt er að kunna á ýlinn sinn áður en haldið er til fjalla, svo kynnið ykkur þetta tól vandlega.
  • hjálmur
  • gönguöxi
  • broddar
  • klifurbelti
  • 2 læstar karabínur
    Þetta er lágmark til að geta sigið. Ef áhugi er á er ágætt að koma með fleiri; tvær til fjórar auka læstar og tvær til sex ólæstar. Það er alltaf gott að geta gripið til fleiri karabína.
  • tryggingatól
    Athugið að það eru til ýmsar útgáfur af þessu; einföld túba gengur upp en einnig eru til tæknilegri græjur eins og Black Diamond ATC eða Petzl Reverso. Þeir sem hafa hug á að stunda klifur að einhverju ráði ættu eflaust að kaupa sér slíkt. Fyrir aðra dugar túban fyrir þetta námskeið, en hana getið þið mögulega fengið lánaða úr sameiginlegum búnaði Sveitarinnar.
  • 120 cm saumaður borði (e. sling)
    Slingurinn er hluti af sigbúnaði en hann má einnig nota til að setja upp tryggingar og akkeri.
  • 10 m (minnst) af 6mm þarfaspotta (e. accessory cord)
    Þarfaspottinn er notaður í öryggisprússik og almenna spotta til að setja upp tryggingar og akkeri, júmma og ýmislegt annað. Þetta þarf að sníða til og verður gert á fyrsta kvöldi námskeiðisins eða undirbúningskvöldi þar á undan.

Valfrjáls búnaður

  • sérsaumaður öryggisprússik
    Þetta er lykkja úr spotta sem er saumaður saman og má nota fyrir sigprússik svo hann þurfi ekki að hnýta saman. Hollow core spotti er sérlega ganglegur þar sem hann er mjúkur og grípur vel í línur. Þægileg græja en stuttur þarfaspotti, bundinn saman með tvöföldum fiskimannshnút gerir sama gagn.
  • nokkrar læstar og ólæstar karabínur (sjá að ofan)
  • 4 m af 7 mm þarfaspotta
    Þetta gagnlegt til að setja upp megintryggingar úr fleiri en einni tryggingu.