Munur á milli breytinga „Uppsetning á Raspberry Pi“

Úr Kvika HSSR
Stökkva á: flakk, leita
(Ný síða: == Leiðbeiningar um uppsetningu á Raspberry Pi sem sýnir eina vefsíðu við ræsingu. == === Stýrikerfið === Setja upp Rasbian stýrikerfið sem má sækja hérna: [https://www...)
 
m
Lína 55: Lína 55:
 
=== Nano editorinn ===
 
=== Nano editorinn ===
 
[http://www.howtogeek.com/howto/42980/the-beginners-guide-to-nano-the-linux-command-line-text-editor/ The Beginner’s Guide to Nano, the Linux Command-Line Text Editor]
 
[http://www.howtogeek.com/howto/42980/the-beginners-guide-to-nano-the-linux-command-line-text-editor/ The Beginner’s Guide to Nano, the Linux Command-Line Text Editor]
 +
 +
[[Flokkur:UT hópur]]

Útgáfa síðunnar 13. janúar 2016 kl. 23:33

Leiðbeiningar um uppsetningu á Raspberry Pi sem sýnir eina vefsíðu við ræsingu.

Stýrikerfið

Setja upp Rasbian stýrikerfið sem má sækja hérna: [1]

Tinni lenti í vandræðum með að nota Jessie útgáfuna þannig að hann setti upp Wheezy útgáfuna (held ég allavega).

Setja upp hugbúnað

Uppfæra (þessu skrefi var sleppt á upplýsingaskjánum án vandræða)

sudo apt-get update && apt-get upgrade -y

Setja upp chromium browser ásamt fleiru. Unclutter á að sjá um að fela músarbendilinn.

sudo apt-get install chromium x11-xserver-utils unclutter

Autostart

Til að stýra því hvaða forrit eru ræst þegar skjáborðið ræsir þá er skránni /etc/xdg/lxsession/LXDE-pi/autostart breytt.
Ath að ef nýrra stýrikerfi er notað þá gæti þurft að breyta LXDE-pi í LXDE í slóðinni. En í þessari útgáfu af stýrikerfinu sem er á tölvunum núna þurfti að breyta skránni á LXDE-pi slóðinni.

sudo nano /etc/xdg/lxsession/LXDE-pi/autostart

Það þarf að setja eftirfarandi línur inn í skránna fyrir ofan screensaver línuna og setja # fremst í screensaver línuna:

@xset s off

@xset -dpms
@xset s noblank

@chromium --kiosk --incognito http://some.web

Stilla á að ræsa skjáborð sjálfkrafa

Til að láta tölvuna ræsa skjáborðið sjálfkrafa þá er sett inn eftirfarandi skipun:

sudo raspi-config

Svo er valið hvað á að gerast þegar tölvan "bootar". Velja að ræsa desktop og logga inn pi notandann.

Annað gagnlegt

Flýtilyklar

Til að komast í console þá þarf að ýta á ALT+F2 og logga þar inn pi notandann (lykilorð er raspberry).
Til að fara til baka í vafrann er ýtt á ALT+F7.

Ef það opnast flipar í vafranum (það sjást ekki hausar á flipunum) þá er hægt að hoppa á milli þeirra með CTRL+tala (1-9).
Til að loka vafranum er ýtt á CTRL+F4 og þá er hægt að vinna í desktop ef það þarf.

Skjástillingar

Ef tölvan er ekki að stilla skjáinn rétt sjálfkrafa þá er hægt að stilla það handvirki með því að breyta skránni /boot/config.txt.

sudo nano /boot/config.txt

Farið samt varlega í að breyta þessari skrá því það er erfitt að vinna skjálaus :)

Leiðbeiningar

Núverndi leiðbeiningar

Núna voru þessar leiðbeiningar notaðar: Raspberry Pi kiosk mode with chromium

Eldri uppsetning

Þessi uppsetning er ekki notuð í núverandi uppsetningu á tölvunum en hér er margt gagnlegt ef efri leiðbeiningarnar eru ekki fullnægjandi.

Tölvan var sett upp eftir þessum leiðbeingum: HOWTO: Boot your Raspberry Pi into a fullscreen browser kiosk.

Chromium er ekki lengur í boði fyrir Debian Jessie svo það þarf að setja hann sérstaklega upp. Sjá Running the latest Chromium 45 on Debian Jessie on your Raspberry Pi 2.

Nano editorinn

The Beginner’s Guide to Nano, the Linux Command-Line Text Editor