Munur á milli breytinga „Þrif á bílum“
Úr Kvika HSSR
m (→Þrif innan bílanna: málfræði) |
(Myndum bætt inn.) |
||
Lína 1: | Lína 1: | ||
+ | [[Mynd:Bílaþrifbúnaður í tækjasal.jpg|300px|thumb|left|Rekkinn með bílaþrifgræjunum.]] | ||
+ | [[Mynd:Bílaþrifbúnaður háþrýstidæla.jpg|thumb|Háþrýstidælan. Munið að slökkva á háþrýstidælunni og taka aðeins í gikkinn til að létta á þrýstingnum.]] | ||
Notkun á bílum sveitarinnar er allmikil og þeir verða æði oft afar skítugir. Það er ennfremur mikilvægt að halda þeim í ágætu útliti upp á andlit sveitarinnar út á við. Því á ætíð að þrífa bílana þegar komið er í hús. Það er lítið mál og löðurmannlegt ef rétt er að staðið og fólk hjálpast að. | Notkun á bílum sveitarinnar er allmikil og þeir verða æði oft afar skítugir. Það er ennfremur mikilvægt að halda þeim í ágætu útliti upp á andlit sveitarinnar út á við. Því á ætíð að þrífa bílana þegar komið er í hús. Það er lítið mál og löðurmannlegt ef rétt er að staðið og fólk hjálpast að. | ||
− | Til að flýta fyrir er gott að skipta með sér verkum. Einhverjir þrífa ytra byrðið á meðan aðrir tæma hann, þrífa innra byrðið og ganga frá sameiginlegum búnaði. Hér fylgja grófar leiðbeiningar. | + | Til að flýta fyrir er gott að skipta með sér verkum. Einhverjir þrífa ytra byrðið á meðan aðrir tæma hann, þrífa innra byrðið og ganga frá sameiginlegum búnaði. Hér fylgja grófar leiðbeiningar.<br style="clear:left;"> |
− | + | ||
== Þrif innan bílanna == | == Þrif innan bílanna == | ||
− | + | [[Mynd:Bílaþrifbúnaður inniþrif.jpg|thumb|Kassar með helstu verkfærum og efnum til þrifa innan í bílunum.]] | |
# Tæma rusl og óskilamuni. | # Tæma rusl og óskilamuni. | ||
#: Oft og tíðum verða eftir nestispokar, fernur eða dósir í bílunum eftir bílferðina heim. Eins eiga húfur, veski og jafnvel GPS tæki til að gleymast í hamaganginum. Hendið rusli, setjið almenna óskilamuni í óskilamunarekkann undir stiganum en gott er að setja verðmætari gripi inn til starfsmanns eða á skrifstofuna og senda póst á einhvern sem getur passað upp á gripinn. | #: Oft og tíðum verða eftir nestispokar, fernur eða dósir í bílunum eftir bílferðina heim. Eins eiga húfur, veski og jafnvel GPS tæki til að gleymast í hamaganginum. Hendið rusli, setjið almenna óskilamuni í óskilamunarekkann undir stiganum en gott er að setja verðmætari gripi inn til starfsmanns eða á skrifstofuna og senda póst á einhvern sem getur passað upp á gripinn. | ||
Lína 18: | Lína 19: | ||
== Þrif ytra byrðis == | == Þrif ytra byrðis == | ||
+ | [[Mynd:Bílaþrifbúnaður tjöruhreinsir.jpg|thumb|Tjöruhreinsir og úðabrúsar.]] | ||
+ | [[Mynd:Bílaþrifbúnaður bílasápa.jpg|thumb|Bílasápa.]] | ||
<ol start=0> | <ol start=0> |
Útgáfa síðunnar 4. júní 2016 kl. 21:24
Notkun á bílum sveitarinnar er allmikil og þeir verða æði oft afar skítugir. Það er ennfremur mikilvægt að halda þeim í ágætu útliti upp á andlit sveitarinnar út á við. Því á ætíð að þrífa bílana þegar komið er í hús. Það er lítið mál og löðurmannlegt ef rétt er að staðið og fólk hjálpast að.
Til að flýta fyrir er gott að skipta með sér verkum. Einhverjir þrífa ytra byrðið á meðan aðrir tæma hann, þrífa innra byrðið og ganga frá sameiginlegum búnaði. Hér fylgja grófar leiðbeiningar.
Þrif innan bílanna
- Tæma rusl og óskilamuni.
- Oft og tíðum verða eftir nestispokar, fernur eða dósir í bílunum eftir bílferðina heim. Eins eiga húfur, veski og jafnvel GPS tæki til að gleymast í hamaganginum. Hendið rusli, setjið almenna óskilamuni í óskilamunarekkann undir stiganum en gott er að setja verðmætari gripi inn til starfsmanns eða á skrifstofuna og senda póst á einhvern sem getur passað upp á gripinn.
- Ryksuga og/eða skúra
- Þetta fer svolítið eftir bílnum og ástandinu á honum.
- Notið endilega bláu ryksuguna til að taka helsta rykið, mölina eða mylsnuna úr sætum, glasahöldurum og slíku.
- R1: Gólfin má sópa en oft er best að bara skvetta vatni á gólfin og strúka af með sköfu (sérlega mikil drulla kallar á smá nudd með kústi).
- R2 og framsætin í R7: Kippið gólfmottunum úr, þrífið og hengið til þerris (t.d. á dekkin eða stuðaragrindina).
- R7 afturí: Ryksugan er hér vinur þinn við að ná skít upp af gólfinu innan stólfestinganna. Svo er gott að fara yfir með blautri tusku þegar gólfið er drullugt.
- Strokið af innréttingu og gluggum.
- Öðru hverju er gott að þrífa þessa þætti sem annars fá litla ást (t.d. þegar bíllinn er grútskítugur ... eða þá annars það hreinn að eitthvert hinna skrefanna tók stuttan tíma eða mátti sleppa).
- Klútar og gluggahreinsir eiga að vera í hillunum við háþrýstidæluna.
Þrif ytra byrðis
- Sprauta bílinn með olíuhreinsi.
- Þessu skrefi má sleppa á sumrin.
- Olíuhreinsirinn er litlaus vökvi og er geymdur á stórum brúsum í hillunum við háþrýstidæluna. Hellið honum í úðabrúsana, pumpið og úðið honum á bílinn.
- Olíuhreinsirinn virkar mun verr í bleytu og því er mikilvægt að setja hann á áður en bíllinn er skolaður.
- Einblínið á litlu svörtu punktana sem er að finna neðarlega og í kringum brettakanntana.
- Lofið olíuhreinsinum að liggja á í nokkrar mínútur.
- Skolið bílinn með háþrýstidælunni
- Til að ræsa háþrýstidæluna þarf að snúa grænum rofa á kassa neðan við hana.
- Ekki gleyma hjólaskálunum og öðrum stöðum þar sem aur safnast fyrir.
- Kústið bílinn með sápu
- Blandið eilitlu af bílasápu í fötu með hreinu vatni. Sápan er rauðleit og geymd í stórum brúsum í hillunum við háþrýstidæluna.
- Skolið sápuna af með háþrýstidælunni
- Ef það er mikill snjór á bílnum er gott að ná honum af svo það liggi ekki undir honum drullugir hraukar þegar hann fer að bráðna sem skilja svo eftir sig drullubletti.