Munur á milli breytinga „Fjallamennska“
Úr Kvika HSSR
(Fleiri fjallamennskuatriðum bætt við.) |
|||
Lína 17: | Lína 17: | ||
;[[/Sig/]] | ;[[/Sig/]] | ||
: Niðurganga er oft ekki síður erfið en uppgangan og því er ágætt að hafa möguleikann á að síga einfaldlega niður bratta eða hamra. | : Niðurganga er oft ekki síður erfið en uppgangan og því er ágætt að hafa möguleikann á að síga einfaldlega niður bratta eða hamra. | ||
+ | ;[[/Leiðsluklifur/]] | ||
+ | ;[[/Ferli klifurs/]] | ||
+ | ;[[/Félagabjörgun/]] |
Útgáfa síðunnar 12. nóvember 2014 kl. 01:40
- Öryggi á fjöllum
- Fjallamennska er í eðli sínu hættuleg og þótt hægt sé að ná nokkru öryggi með þeim verkfærum, tækni og þekkingu sem kynnt eru hér að neðan er nauðsynlegt að þekkja til þeirra hætta sem að kunna að steðja, hvernig tryggja megi öryggis og (sem reynist mörgum ákaflega erfitt) hvenær snúa skuli við.
- Ísöxin
- Ísöxin er hið gagnlegasta tól. Hana má nota sem staf til stuðnings, til að höggva sér spor í hálan klaka, til að hífa sig upp þegar lítið er um höldur og svo til að stöðva bremsa göngumann ef hann rennur af stað.
- Broddaganga
- Broddar gera annars ó- eða illfær svæði auðveld yfirferðar. Hins vegar þarf að huga vel að beitingu þeirra. Það mikla grip sem þeir gefa er tvíeggja blað og getur valdið meiðslum ef ekki er rétt að farið.
- Hnútar
- Línur eru notaðar í margvíslegum tilgangi á fjöllum og er þá nauðsynlegt að þekkja nokkra gagnlega hnúta nægilega vel svo hægt sé að hnýta þá hratt og örugglega í erfiðum aðstæðum.
- Gengið í línu
- Ein gagnsemi lína er til trygginar meðlima í gönguhópi. Þá tengja sig allir við eina línu og tryggja hvort annað ef einhver kynni að falla í sprungu eða renna niður hlíð.
- Bergtryggingar
- Bergtryggingar eru ákaflega þægilegar enda auðveldara að sjá styrk þeirra og við höfum mikið traust á hörðu berginu. Þó verður að gæta þess að setja bergtryggingar vel upp svo þær svari því trausti sem við leggjum á þær.
- Snjótryggingar
- Stundum er ekkert til taks nema snjórinn til að tryggja í. Það er svosum allt í lagi því það má tryggja í glettilega lausan snjó. Því þéttari sem hann er því öruggari verður samsskonar trygging þó.
- Ístryggingar
- Ís er, þrátt fyrir að vera brothættur, hið ágætasta efni til að tryggja í. Algengt er að nota ísskrúfur en einnig má v-þræða og leika ýmsar kúnstir.
- Sig
- Niðurganga er oft ekki síður erfið en uppgangan og því er ágætt að hafa möguleikann á að síga einfaldlega niður bratta eða hamra.
- Leiðsluklifur
- Ferli klifurs
- Félagabjörgun