Fjallamennska 1
Úr Kvika HSSR
Efnisatriði
Farið verður í:
Búnaður
- snjóflóðaýlir, skófla og snjóflóðastöng
- Þetta er hin svokallaða ,,Heilaga þrenning fjallafólks og á ætíð að vera með í för þegar hinn minnsti möguleiki er á snjóflóðum. Mikilvægt er að kunna á ýlinn sinn áður en haldið er til fjalla, svo kynnið ykkur þetta tól vandlega.
- hjálmur
- gönguöxi
- brodda
- klifurbelti
- 2 læstar karabínur
- Þetta er lágmark til að geta sigið. Ef áhugi er á er ágætt að koma með fleiri; tvær til fjórar auka læstar og tvær til sex ólæstar. Það er alltaf gott að geta gripið til fleiri karabína.
- tryggingatól
- Athugið að það eru til ýmsar útgáfur af þessu; einföld túba gengur upp en einnig eru til tæknilegri græjur eins og Black Diamond ATC eða Petzl Reverso. Þeir sem hafa hug á að stunda klifur að einhverju ráði ættu eflaust að kaupa sér slíkt. Fyrir aðra dugar túban fyrir þetta námskeið, en hana getið þið mögulega fengið lánaða úr sameiginlegum búnaði Sveitarinnar.
- 120 cm sling
- Slingurinn er hluti af sigbúnaði en hann má einnig nota til að setja upp tryggingar og akkeri.
- 10 m (minnst) af 6mm þarfaspotta
- Þarfaspottinn er notaður í öryggisprússik og almenna spotta til að setja upp tryggingar og akkeri, júmma og ýmislegt annað. Þetta þarf að sníða til og verður gert á fyrsta kvöldi námskeiðisins eða undirbúningskvöldi þar á undan.
Aukabúnaður
- hollow core, styttri týpan.
- Þetta er lykkja úr (hollow core) spotta sem er saumaður saman og má nota fyrir sigprússik. Þægileg græja en stuttur þarfaspotti, bundinn saman með tvöföldum fiskimannshnút gerir sama gagn.
- nokkrar læstar og ólæstar karabínur (sjá að ofan)
- 4 m af 7 mm þarfaspotta
- Þetta gagnlegt til að setja upp megintryggingar úr fleiri en einni tryggingu.