Fjallamennska/Ferli klifurs
Ferli klifurs fer að miklu leiti eftir gerð þess og aðstæðum. Gróflega má skipta gerðunum upp í ofanvaðsklifur og leiðsluklifur en það síðara má svo klifra í einni spönn eða fleirum og er þá talað um fjölspanna klifur.
Aðstæður hafa mikil áhrif á ferlið en hér verður farið gróflega í nokkrar þumalputtareglur sem gagnlegar eru til að koma í veg fyrir slys af yfirsjón, misskilningi eða vankunnáttu.
Efnisyfirlit
Almennar öryggisreglur
Þegar klifrað er er rétt að framkvæma félagaskoðun; þ.e. ekki treysta félaganum til að hafa ekki gert mistök og ekki sleppa því góða tækifæri á að fá félagann til að fara yfir hjá þér—það tekur nokkrar mínútur og getur bjargað lífi ykkar beggja. Yfirleitt er þess ekki meira þörf en bílbeltisins sem ég vona eindregið að lesendur þó noti.
Félagaskoðun gengur út á það að tryggja að félaginn sé rétt útbúinn. Sá sem er að leggja af stað í klifur þarf að vera:
- með hjálm og aðrar tilhlýðilegar öryggisgræjur sem aðstæður kalla á.
- rétt ólaður í belti. Hér er mikilvægt að kunna á belti félagans; þarf að bakþræða það, er beltið snúið, o.s.frv.
- rétt bundinn í línu. Áttuhnútur er almennt talinn bestur; hann losnar seint en er þó auðvelt að losa með höndum þrátt fyrir að hafa tekið nokkur föll, og svo er ákaflega auðvelt að sjá hvort hann sé rétt hnýttur.
Tryggjarinn þarf að vera:
- með hjálm og aðrar tilhlýðilegar öryggisgræjur sem aðstæður kalla á. Hér er ennfremur gott að ræða hvar tryggjarinn ætlar að standa því oft er betra að vera til hliðar til að verða ekki fyrir grjóthruni. Það er gagnslaust að vera tryggður af rotuðum tryggjara. Blóðgaður, handleggsbortinn eða emjandi gerir heldur ekki fullt gagn.
- rétt ólaður í belti.
- með tryggingatól rétt bundið í vinnulykkju eða tryggingu.
- með klifurlínuna rétt þrædda í gegnum tryggingatólið.
- með gengið frá hinum enda klifurlínunnar svo hann geti ekki runnið í gegnum trygginatólið. Hnútur er nægjanlegur í einnar spannar klifri en í fjölspanna klifri er rétt að sá sem fylgi sé bundinn í endann til að stytta tímann sem fer í skiptinguna.
Hjálmur
Klifurhjálmar eru almennt hannaðir til að verja kollinn sem í hjálminum liggur fyrir hnjaski að ofan. Hjólreiðahjálmar o.s.frv.!!!
Belti
Tryggingatól
Fyrir einfalt, einnar spannar klifur er túba fullkomlega nægjanlegt verkfæri. Ef halda á í fjölspanna klifur verður mikilvægt að vera með tryggingatól með sjálflæsanlegri stillingu. Grigri-inn frá Petzl er afar umdeilt tæki til notkunar í fjölspanna klifri sem hér með er þér bannað að nota það í nokkuð annað en þú þekkir kosti og galla þess tækis á.
Það er mikilvægt að gæta þess að tryggingartólið sé gert fyrir sverleika þeirrar línu sem þú ert að nota. Sé hún of grönn eða breið verður viðnámið of mikið eða lítið.