Reykur 1
Úr Kvika HSSR
Beinirinn
SSID beinisins (routernum) er R1. Lykilorðið er hægt að fá hjá Bílahóp.
Það þarf að passa það að þetta fari ekki á flakk. Bílstjórar á bílnum verða að vita þetta til að geta komið nýjum tölvum í samband, en þetta á ekki að vera í almennri notkun hjá félögum. Það er ekkert að því að fólk viti þetta, en beininn á ekki að nota nema að þess sé þörf í útkalli. Þeir sem tengjast netinu þurfa að muna að taka það út í kjölfarið.
Notkunin kostar sitt og ef margir aðilar eru með símana inni á þessu verður netið ónothæft í útköllum. Það getur jafnvel haft áhrif á aðra aðila, eins og kom fyrir svæðisstjórnarbílinn í Sólheimajökulsútkallinu.