Stjórnendur upplýsingar

Úr Kvika HSSR
Útgáfa frá 1. maí 2016 kl. 17:29 eftir Ragga (Spjall | framlög)

(breyting) ←Fyrri útgáfa | Núverandi útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Stökkva á: flakk, leita

Bílastæði stjórnun - Sér um að allt gangi vel varðandi stjórnun á bílastæðum, raðar mönnum á svæðið og upplýsir um það sem gera þarf. Hver og einn á að vita um sína næstu stöðu.

Inngangar stjórnun Tveir aðilar eru í stjórnun á inngöngum, nyrðri inngangi og syðri inngangi. Passa að skannar virki og allir viti sitt hlutverk. Sjá um að þeir sem verða eftir við innganga viti sitt hlutverk (enginn má fara út né inn eftir að búið er að loka og á það sérstaklega við um í leikhléi). Sá sem fer út kemur ekki aftur inn. Þeir sem færast á annan stað eftir innganga eiga sjálfir að vita hvert þeir fara, þó ágætt að hafa smá hugmynd um það. Taka saman borð, eftir að skannar hafa verið teknir (við sjáum ekki um að taka skanna/tölvur). Efrtir leikhlé, sjá um að allir fái að borða en alltaf sé einhver við útganga/innganga. Skipta hóp í mat, ekki verður sendur neinn sérstakur til að leysa af.

Vínleit stjórnun Tveir aðilar eru í stjórnun á vínleit, við sitthvorn innganginn. Sjá um að klára að setja upp vínleitarhlið, ef það er ekki búið. Fara yfir með fólki í vínleit hvað gera skal. Reyna að hafa kvenmann og karlmann við hvorn inngang. Cirka 15 mín eftir að leikur byrjar þá má taka niður vínleitarhlið og ganga frá. Hver og einn ætti að vita sína næstu stöðu, en ágætt að hafa smá hugmynd um það.

Brautir stjórnun Tveir aðilar eru í Brautar stjórnun, norðan megin og sunnan megin við varamannabekk. Fara yfir með nýjum aðilum hvað sé þeirra hlutverk. Passa að gæslumenn við braut dreifist jafnt fyrir framan allar stúkur. Upplýsa um línu sem ekki má fara út fyrir, frá horni á velli í horn á varamannabekk. Eftir leikhlé sjá um að allir fái að borða, skipta hópnum í mat. Ekki verður sendur neinn sérstakur til að leysa af.

Norður og Suður stjórnandi á 3. hæð Tveir stjórnendur á sitthvorum endanum. Á hvorum enda eru oftast um 3 gæslumenn, passa að allir viti sitt hlutverk Vera með á hreinu hvaða miðar það eru sem hafa aðgang að sölum á 3ju hæð. Passa að ekkert vín, gler né plastflöskur með tappa fari útí stúku. Eftir leikhlé sjá um að allir fá að borða, skipta hópnum í mat. Stjórnandi Miðstigahúsi Einn stjórnandi sér um að upplýsa aðila um sitt hlutverk. Vera með á hreinu hvaða miðar það eru sem hafa aðgang að VIP sölum. Muna að ALLIR þurfa að vera með miða, líka litlu börnin, ef vandamál þá þarf að tala við Víðir og fá leyfi hjá honum. Passa að enginn fari útúr VIP sölum með áfengi, gler eða plastflöskur með tappa. Skipta hópnum í mat, ekki verður sendur neinn sérstakur til að leysa af. Stjórnandi Heiðurstúku Einn stjórnandi sér um að upplýsa aðila um sitt hlutverk. Gott er að láta nýja aðila kynna sér hvernig sæti stúkunnar eru og hvar, til að geta vísað til sætis Passa að ekki áfengi, gler eða plastflöskur með tappa fari útí Heiðursstúku. MUNA að allir þurfa að vera með miða, líka börnin. Skipta hópnum í mat, ekki verður sendur neinn sérstakur til að leysa af.