Fjallamennska 1

Úr Kvika HSSR
Útgáfa frá 2. mars 2015 kl. 10:57 eftir Tinni (Spjall | framlög)

Stökkva á: flakk, leita

Efnisatriði

Farið verður í:

Búnaður

  • snjóflóðaýlir, skófla og snjóflóðastöng
    Þetta er hin svokallaða ,,Heilaga þrenning fjallafólks og á ætíð að vera með í för þegar hinn minnsti möguleiki er á snjóflóðum. Mikilvægt er að kunna á ýlinn sinn áður en haldið er til fjalla, svo kynnið ykkur þetta tól vandlega.
  • hjálmur
  • gönguöxi
  • brodda
  • klifurbelti
  • 2 læstar karabínur
    Þetta er lágmark til að geta sigið. Ef áhugi er á er ágætt að koma með fleiri; tvær til fjórar auka læstar og tvær til sex ólæstar. Það er alltaf gott að geta gripið til fleiri karabína.
  • tryggingatól
    Athugið að það eru til ýmsar útgáfur af þessu; einföld túba gengur upp en einnig eru til tæknilegri græjur eins og Black Diamond ATC eða Petzl Reverso. Þeir sem hafa hug á að stunda klifur að einhverju ráði ættu eflaust að kaupa sér slíkt. Fyrir aðra dugar túban fyrir þetta námskeið, en hana getið þið mögulega fengið lánaða úr sameiginlegum búnaði Sveitarinnar.
  • 120 cm sling
    Slingurinn er hluti af sigbúnaði en hann má einnig nota til að setja upp tryggingar og akkeri.
  • 10 m (minnst) af 6mm þarfaspotta
    Þarfaspottinn er notaður í öryggisprússik og almenna spotta til að setja upp tryggingar og akkeri, júmma og ýmislegt annað. Þetta þarf að sníða til og verður gert á fyrsta kvöldi námskeiðisins eða undirbúningskvöldi þar á undan.

Aukabúnaður

  • hollow core, styttri týpan.
    Þetta er lykkja úr (hollow core) spotta sem er saumaður saman og má nota fyrir sigprússik. Þægileg græja en stuttur þarfaspotti, bundinn saman með tvöföldum fiskimannshnút gerir sama gagn.
  • nokkrar læstar og ólæstar karabínur (sjá að ofan)
  • 4 m af 7 mm þarfaspotta
    Þetta gagnlegt til að setja upp megintryggingar úr fleiri en einni tryggingu.