Fjallamennska/Hnútar
Efnisyfirlit
Tvöfaldur fiskimannshnútur
Þessi er notaður til að binda tvo enda saman svo þeir losni ómögulega. Þetta er notað t.a.m. til að búa til lykkju úr þarfaspotta svo binda megi prússikhnút utan um línu.
Prússikhnútur
Prússikhnútur (nefndur eftir Austurríkismanninum Karli Prusik) er gagnlegur viðnámshnútur sem bregða má utan um línu til að grípa um hana. Þennan hnút má nota sem öryggishnút við sig, við júmm, félagabjörgun og margt annað.
Til eru ýmsar útgáfur af svona viðnámsbrögðum og eru klemheist og autoblock (einnig kallaður franskur Prusik) einnig algengir.
Áttuhnútur
Áttuhnútur er afar gagnlegur hnútur, meðal annars fyrir þær sakir að hann er nokkuð auðvelt að losa og sjá hvort hann sé rétt bundinn. Þegar áttuhnútur er þræddur til baka verður til lykkja sem oft er notuð til að binda klifurbelti í línu.
Fiðrildi/alpahnútur
Fiðrildahnútur er sérlega gagnlegur fyrir þær sakir að hann getur tekið átak í báða enda án þess að veikjast að ráði (líkt og áttuhnútur). Þessi hnútur er því yfirleitt notaður til að binda miðjumenn í göngulínu.
- Alpinebutterfly
- The Hybrid Method Of Tying The Alpine Butterfly Knot
- Auðveldari aðferð ef línan er ísuð
Hestahnútur/skutulsbragð
Skutulsbragðið er gagnlegt fyrir einfaldleika sem gerir það að verkum að þetta má nota til að festa spotta í svo til hvað sem er með lítilli fyrirhöfn. Hestahnút er gagnlegur til að festa sig með klifurlínu í tryggingu eða akkeri.
Borðahnútur
Þegar binda á tvo borða saman þarf að nota borðahnút svo hann renni ekki.