Fjallahópur

Úr Kvika HSSR
Útgáfa frá 11. ágúst 2015 kl. 10:35 eftir Tinni (Spjall | framlög)

Stökkva á: flakk, leita

Fjallahópur er breiður og fjölbreyttur hópur áhugafólks um utanbæjarútivist hverskonar, allt frá tjaldferðalögum til skíðamennsku til háfjallaklifurs. Markmið Fjallahópsfólks er að bæta sig og viðhalda þekkingu á öllum helstu þáttum fjallamennsku með það að markmiði að gera meðlimi hópsins betur búna undir leitar- og björgunaraðgerðir til fjalla.

Dagskrá hópsins er því fjölbreytt auk þess sem, eðli hópsins samkvæmt, hann er vettvangur fyrir skipulag ferða.

Síða hópsins á D4H

Stjórnendur hópsins eru Stefán Baldur og Tinni.

Helstu áhersluþættir

Björgunaraðgerðir á fjalli
Þekkja ferli, búnað og kerfi í fjallabjörgun (brattbjörgun og félagabjörgun) og geta unnið með hóp að uppsetningu og stuðningi við brattbjörgunarkerfi, þ.m.t. tryggingar.
Aðgerðir á jökli
Þekkja helstu öryggisþætti er varða ferðalög á jökli, hvort sem ferðast eru með stórum hóp eða ekki s.s. leiðaval, línuuppsetningu og sprungubjörgun.
Vera tilbúin til leitar á jökli, bæði grófleit (mikil yfirferð) og fínleit (svelgsig) þ.m.t. tryggingar og línuvinna.
Leit í brattlendi
Geta unnið sjálfstætt og í hóp við erfiðar aðstæður á fjalli. Geta metið eigin getu með tilliti til aðstæðna og verkefna (rötun, sig og júmm).
Geta lagt mat á snjóflóðahættu. Geta sett upp og yfirfarið snjó- og bergtryggingar. Færni til að ganga á broddum.
Björgun
Geta búið um sjúkling í allar börutegundir, og aðstoðað við flutning, hvort sem er í línutrygginginum eða í burði. Þekkja vinnulag við þyrlu.
Öryggi
Geta borið mat á líkamlegt ástand sitt og ferðafélaga, sérstaklega með tilliti til kals, þreytu og ofkælingar, og brugðist við með viðeigandi hætti. Þekkja eigin búnað og geta búið um sár, skurði og helstu brotáverka (á fjalli).

Viðburðir á vegum hópsins

  • Fjall mánaðarins
  • Gengið á jökli (ca. nóvember)
  • Skálagönguferð (ca. janúar)
  • Jómfrúarferðin (stöðumat N1 í fjallamennsku að vori)

Búnaður hópsins

  • Hálflína fjólublá
  • Hálflína sægræn
  • Heillína græn A
  • Heillína græn B
  • 10m? 8mm bomba
  • 3x 8mm prússiklykkjur
  • Hnetusett (1-?)
  • Rakkur
  • Vinir (?-?)
  • Taska, Marmot stór