Gengið á jökli
Úr Kvika HSSR
Jöklaganga fellur undir ferðamennsku á jökli sem kennd er í Fjallamennsku 2 en í HSSR höfum við nálgast þetta með því að undirbúa nýliða með því að taka einn dag á jökli í göngu á broddum. Broddaganga er nokkuð tæknileg og gott að hafa hana á hreinu áður en farið er í flóknari aðstæður.
Áður en lagt er af stað er farið í tegundir brodda, og hvernig þeir eru mátaðir og festir undir skó. Í broddagöngunni er svo farið í göngu á láréttu, göngu upp í móti annars vegar með flötum fótum og hins vegar á tám, göngu niður í móti og göngu í hliðarhalla. Kann að hljóma einfalt en það er ýmislegt að varast og afleiðingar mistaka geta verið alvarlegar.
Undirbúningur
Líttu yfir myndböndin á Fjallamennska/Broddaganga.