Stjórnendur upplýsingar

Úr Kvika HSSR
Útgáfa frá 1. maí 2016 kl. 17:37 eftir Ragga (Spjall | framlög)

(breyting) ←Fyrri útgáfa | Núverandi útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Stökkva á: flakk, leita

Bílastæði stjórnun

  • Sér um að allt gangi vel varðandi stjórnun á bílastæðum.
  • Raðar mönnum á svæðið og upplýsir um það sem gera þarf.
  • Hver og einn á að vita um sína næstu stöðu.

Inngangar stjórnun

  • Tveir aðilar eru í stjórnun á inngöngum, nyrðri inngangi og syðri inngangi.
  • Passa að skannar virki og allir viti sitt hlutverk.
  • Sjá um að þeir sem verða eftir við innganga viti sitt hlutverk (enginn má fara út né inn eftir að búið er að loka og á það sérstaklega við um í leikhléi).
  • Sá sem fer út kemur ekki aftur inn.
  • Þeir sem færast á annan stað eftir innganga eiga sjálfir að vita hvert þeir fara, þó ágætt að hafa smá hugmynd um það.
  • Taka saman borð, eftir að skannar hafa verið teknir (við sjáum ekki um að taka skanna/tölvur).
  • Eftir leikhlé, sjá um að allir fái að borða en alltaf sé einhver við útganga/innganga.
  • Skipta hóp í mat, ekki verður sendur neinn sérstakur til að leysa af.

Vínleit stjórnun

  • Tveir aðilar eru í stjórnun á vínleit, við sitthvorn innganginn.
  • Sjá um að klára að setja upp vínleitarhlið, ef það er ekki búið.
  • Fara yfir með fólki í vínleit hvað gera skal.
  • Reyna að hafa kvenmann og karlmann við hvorn inngang.
  • Cirka 15 mín eftir að leikur byrjar þá má taka niður vínleitarhlið og ganga frá.
  • Hver og einn ætti að vita sína næstu stöðu, en ágætt að hafa smá hugmynd um það.

Brautir stjórnun

  • Tveir aðilar eru í Brautar stjórnun, norðan megin og sunnan megin við varamannabekk.
  • Fara yfir með nýjum aðilum hvað sé þeirra hlutverk.
  • Passa að gæslumenn við braut dreifist jafnt fyrir framan allar stúkur.
  • Upplýsa um línu sem ekki má fara út fyrir, frá horni á velli í horn á varamannabekk.
  • Eftir leikhlé sjá um að allir fái að borða, skipta hópnum í mat. Ekki verður sendur neinn sérstakur til að leysa af.

Norður og Suður stjórnandi á 3. hæð

  • Tveir stjórnendur á sitthvorum endanum.
  • Á hvorum enda eru oftast um 3 gæslumenn, passa að allir viti sitt hlutverk
  • Vera með á hreinu hvaða miðar það eru sem hafa aðgang að sölum á 3ju hæð.
  • Passa að ekkert vín, gler né plastflöskur með tappa fari útí stúku.
  • Eftir leikhlé sjá um að allir fá að borða, skipta hópnum í mat.

Stjórnandi Miðstigahúsi

  • Einn stjórnandi sér um að upplýsa aðila um sitt hlutverk.
  • Vera með á hreinu hvaða miðar það eru sem hafa aðgang að VIP sölum.
  • Muna að ALLIR þurfa að vera með miða, líka litlu börnin, ef vandamál þá þarf að tala við Víðir og fá leyfi hjá honum.
  • Passa að enginn fari útúr VIP sölum með áfengi, gler eða plastflöskur með tappa.
  • Skipta hópnum í mat, ekki verður sendur neinn sérstakur til að leysa af.

Stjórnandi Heiðurstúku

  • Einn stjórnandi sér um að upplýsa aðila um sitt hlutverk.
  • Gott er að láta nýja aðila kynna sér hvernig sæti stúkunnar eru og hvar, til að geta vísað til sætis
  • Passa að ekki áfengi, gler eða plastflöskur með tappa fari útí Heiðursstúku.
  • MUNA að allir þurfa að vera með miða, líka börnin.
  • Skipta hópnum í mat, ekki verður sendur neinn sérstakur til að leysa af.