Gátlisti fyrir umsjónarfólk viðburða
Úr Kvika HSSR
Þú ætlar þér sumsé að sjá um viðburð í HSSR? Frábært! Það er afar lítið mál en þó nokkrir hlutir sem gott er að hafa í huga sem ekki eru kenndir í nýliðaprógramminu og kunna að hafa breyst frá því þú bjóst slíkt til síðast.
Hér er því stuttur gátlisti fyrir umsjónarfólk viðburða:
- Settu viðburðinn inn á D4H
- Þetta er oft gott fyrsta skref svo fólk hafi stað til á skrá sig á viðburðinn þegar þú auglýsir hann.
- Kynntu viðburðinn á einhverjum góðum vettvangi.
- Flestir viðburðir eru skipulagðir af útkallshópunum svo það er góður vettvangur til að finna áhugasama. Eins eru skemmtihópar eins og Klifurveggshópurinn og Fjallahjólahópurinn en þeir eru báðir með Facebook síður.
- Pantaðu bíl ef þörf er á.
- Sendu póst á stjórnendur Bílahóps með minnst viku fyrirvara. Ef útlit er fyrir að það þurfi marga bíla er gott að tala við þá fyrr, annars vegar til að kanna hvort þeir séu í húsi og til að gefa meiri tíma til að manna bílana.
- Skipulegðu viðburðinn
- Já, þetta hljómar sem kjánalegt skref en góður viðburður þarf alúð. Kannski ekki mikla en það er skemmtilegra að gera þetta ekki á síðustu metrunum. Oft er gaman að vera með einhver props sem auðvelt er að redda ... ef maður er með einn dag í viðbót. Gefðu þér því smá tíma vel fyrir viðburðinn til að skipuleggja hvað þið ætlið að gera.
- Skemmtið ykkur!
- Það er gaman þegar það er gaman.
- Gangið frá viðburðinum í D4H
- Það þarf að fara yfir mætingu og skrifa smá samantekt. Skellið því inn og þá er þetta komið!