Útkallsappið

Úr Kvika HSSR
Stökkva á: flakk, leita
Upphafsskjár appsins.

Útkallsapp HSSR er þægileg leið til að svara útkallsboðum. Appið er sem stendur eingöngu til fyrir Android stýrikerfið og má sækja hér.

Viðmót appsins er einfalt, fyrir miðjum skjánum er valið hvort mæta skuli og ef svo, þá tíminn sem áætlað sé að vera reiðubúinn út úr húsi á M6. Neðst eru svo hnappar til að fá aðgang að símanúmerum félagsmanna, svara boðum og hringja í Bækistöð sveitarinnar.

Grunnstillingar

Nauðsynlegt er að skrá símanúmerið sem svarað er í, en þar að auki er hægt að skrá símanúmer bækistöðvar. Fyrir HSSR er þetta:

Símanúmer
112
Sama númer fyrir bakvaktarsíma
Nei (skilja eftir óhakað)
Bakvakt bækistöðvar
841 3030

Félagatal

Stillingarvalstikan birtist neðst.

Í gegnum appið er hægt að fá lista yfir félaga og símanúmer þeirra. Til þess þarf að skrá sérstaka upplýsingaslóð inn í stillingarnar (þáttinn sem kallast "Félagatal URL").

Upplýsingar

Hægt er að koma upplýsingum til skila til notenda í gegnum appið. Þá þarf að skrá sérstaka upplýsingaslóð inn í stillingarnar (þáttinn sem kallast "Upplýsingar URL").

Þessar upplýsingar eru í raun óþarfar nú þegar nýi aðgerðargrunnurinn hefur litið dagsins ljós.

Upplýsingarnar má þá finna með því að fara í stillingarvalstikuna og velja þar "Upplýsingar".

Sjálfgefin svör

Að öllu óbreyttu sýnir upphafsskjárinn núverandi tíma en hægt er að stilla hann svo hann gefi upp ákveðið sjálfgefið svar og tímann sem bætt skal við fyrir boðin.

Þetta er sérlega gagnlegt í því tilfelli að svör eru iðulega keimlík; einhver svarar iðulega mæti/mæti ekki og tíminn þangað til viðkomandi er tilbúinn út úr húsi á M6 er yfirleitt sá sami. Viljirðu nota þetta skaltu fylla það svo út:

Nota stillingar?
Já (setja hak í kassann)
Sjálfgefið svar
Veldu það sem þú telur algengast
Sjálfgefinn ferðatími
Sá tími sem kemst næst að þínum algengasta ferðatíma.

Atburðaskrá

Appið vistar svörin og getur gefið yfirlitsmynd af svörun notandans. Farið í stillingarvalstikuna og veljið þar "Atburðaskrá".