Björgunarskólinn

Úr Kvika HSSR
Stökkva á: flakk, leita


Ferðamennska og rötun

Námskeiðið Ferðamennska og Rötun, eru grunnnámskeiðin Ferðamennska og Rötun kennd saman á helgi. Nánari lýsingu á námskeiðunum má sjá undir námskeiðinu Ferðamennska og námskeiðinu Rötun.

Nánar

Fjallamennska 1

Á Fjallamennsku 1 eru kennd grunnatriði í ferðalögum um fjalllendi að vetri til. Farið yfir helstu hættur og nemendum kennd undirstöðuatriði í lestri á landslagi, sem og umhverfisvitund. Þá er farið yfir það hvernig skal að bera sig að í fjalllendi og sérstaklega er farið yfir notkun ísaxar og mannbrodda ásamt helstu snjótryggingum. Námskeiðið er grunnnámskeið í fjallamennsku og nýtist öllum þeim sem ferðast um fjalllendi að vetrarlagi.

Nánar

Fjallamennska 2

Fjallamennska 2 er framhaldsnámskeið í fjallamennsku, þar sem meiri áhersla er lögð á línuvinnu og flóknari æfingar en áður. Sérstaklega er farið yfir uppsetningu samtengdra trygginga og notkun klifurlínu í fjallamennsku. Námskeiðið er framhaldsnámskeið í fjallamennsku og nýtist þeim sem ferðast um fjalllendi að vetrarlagi.

Nánar