Leitartækni/Sporarakningar
Efnisyfirlit
Búnaður til sporrakninga
- Sporastafur (göngustafur eða prik) + teygjur eða teip
- Málband
- Blað og blýantur (til að teikna spor)
- Sporaflögg / -naglar…
- Ljós. Já, líka þótt það verði bjart!
- (Laserbendill, rennimál, snæri, myndavél)
Til aðstoðar og fyrir aukaæfingar
- GPS tæki (a.m.k. á hvern þriggja mann hóp, fáið trakk til að styðjast við ef slóðin týnist...)
- Tetra a.m.k. á hvern þriggja manna hóp
- Sjónauki
- VHF (a.m.k. á hverja 5)
- Áttaviti
Undirbúningsefni
http://skoli.landsbjorg.is/Open/Course.aspx?Id=3555
Fleira er vísbending en spor
Höfum augun opin fyrir fleiru en greinilegum sporum Verðum við vör við einhver merki um rask? Spyrjið: Gæti þetta hafa gerst án þess að einhver hefði farið hér um?
Vísbendinga- og sporaleit á öllum stigum leitar
Ekki gefa ykkur fyrir fram að vísbendinga- og sporaleit sé vonlaus þótt aðstæður séu erfiðar! Það er alltaf slóð að og frá vísbendingu / síðasta þekkta punkti
Nýtum þann möguleika! Aðrar aðgerðir geta verið í gangi um leið
Reyna…
- þótt langur tími sé liðinn
- þótt margir hafi farið um svæðið
- þótt undirlag / umhverfi sé erfitt
... Í samráði við svæðisstjórn auðvitað)
“Path of most resistance”
Þegar þið eltið slóð: Getur verið gott að ganga sjálf þar sem erfitt er að ganga Stígið þar sem ólíklegra er að hinn týndi hafi stigið Forðist að spilla slóðinni sem þið rekið Dæmi: Ekki ganga á stígnum heldur við hlið hans
Að nálgast bíl hins týnda (dæmi)
- Einn leitarmaður nálgast bílinn varlega
- Merkið leiðina og passið að spilla sem minnstu
- Merkið vísbendingar
- Sömu leið að og frá bíl
- Rask við skott? Við einhverjar hurðir?
- Bíll (skott) opinn?
- Vísbendingar í bíl? (Maður?!?)
- Hversu margt fólk fór úr bílnum? Dýr?
- Hvert stefndi það?
- Spor / annað til að teikna / mæla / mynda og til að bera saman við seinni vísbendingar?
“Sign-cutting”
Hugmyndin er að skera slóðina Flýtir fyrir rakningu (eða leiðir jafnvel til að slóð finnst í fyrsta sinn) Gangið þvert á ætlaða stefnu Notið sporagildrur, þ.e. svæði þar sem auðvelt væri að greina spor
Dæmi 1
Gengið í sífellt stækkandi (eða minnkandi) hringi umhverfis bíl til að finna sporin.
Dæmi 2
Leitarmaður 1 fylgir sporum
Leitarmaður 2 gengur til hliðar við sporin og framfyrir. Skýtur sér svo þvert yfir sporstefnuna til að reyna að finna sporin án þess að þurfa að rekja þau alla leið (styttir þannig fyrir). Leitarmaður 2 getur haldið áfram heilan hring og endað aftur fyrir aftan leitarmann 1 (ef hann finnur ekkert).
Það mætti hafa leitarmann 3 sem líka tekur sveig (stærri / minni en leitarmaður 2 tekur) Ef slóð finnst framar getur leitarmaður 1 stokkið þangað og rakið spor fyrir spor (eða 1 og 2 skipt um hlutverk)
Dæmi 3
Þriggja manna sporrakningarteymi
Einn leitarmaður rekur spor fyrir spor Hinir (“flankers”) hjálpa og hafa augun opin fyrir vísbendingum í kringum slóðina og hinu stærra samhengi, t.d. öðrum slóðum sem gætu blandast saman við “Flankers” geta séð um “sign-cutting” sbr. glærurnar á undan Það er þreytandi að rekja. Skiptið reglulega um hlutverk
Aldur slóðar
- Erfitt að dæma og getur verið villandi
- Margar breytur (jarðvegur, veður…)
- “Bracketing” getur mögulega hjálpað: Finna atburð á þekktum tíma (t.d. hellidembu) sem sporið gæti ekki hafa orðið til fyrir.
Ljós í sporrakningu
Ljós og skuggar geta hjálpað mikið við sporrakningu Prófið að nota ljós, jafnvel um hábjartan dag Dæmi: Haldið ljósi nálægt jörðu og lýsið á móti stefnu sem þið horfið í
Æfingar
Enginn verður góður í sporrakningu nema með mikilli æfingu! Það lærist mest af erfiðu sporunum