Svörun

Úr Kvika HSSR
Stökkva á: flakk, leita

Allir félagar í HSSR sem fá tilkynningu um útkall frá Neyðarlínu eða bakvaktarsíma bækistöðvar eiga að svara þeim með SMS boðum í símanúmerið

112

Gamla bakvaktarnúmerið, 841-3030, er áfram virkt sem símanúmer bækistöðvar og er hægt að ná í þann félaga sem stendur bakvakt hverju sinni í því númeri allan sólarhringinn.


Form svörunar

Til þess að auðvelda úrvinnslu á boðunum eru félagar beðnir um að svara útkallsboðum með eftirfarandi kóðum:

m1300
ef viðkomandi ætlar að mæta strax og verður tilbúin(n) á M6 kl. 13:00.
gm1700
ef viðkomandi getur ekki mætt strax, en getur mætt síðar, ef þarf.
me
ef viðkomandi getur ekki mætt.

Athugið að ekki er gerður greinarmunur á há- og lágstöfum. Það má því líka svara M1300, GM1700, Gm1700, ME eða Me.

Félagar með Androidsíma geta einfaldað sér lífið með því að nota útkallsappið.

Vinsamlega beinið öllum spurningum um kerfið til Óla Jóns í síma 699-1000 eða með tölvupósti á netfangið utkall@hssr.is. Hikið ekki við að hafa samband ef eitthvað er óljóst og ef svör við spurningum finnast ekki í kaflanum hér undir.

Svör við algengum spurningum

Hverjir eiga að svara útkallsboðum?

Allir félagar í HSSR sem fá tilkynningu um útkall eiga að svara með SMS í síma 112 og láta vita hvort þeir geti mætt (og þá hvenær) eða ekki.

Hvernig breyti ég svöruninni minni?

Ef aðstæður breytast (þér seinkar, þú kemst ekki, eða þú kemst þrátt fyrir að hafa svarað ME) þá sendir þú bara ný boð. Þá uppfærast fyrri boð og sýna eingöngu nýju svörunina.

Hvernig svara ég særhæfðum útköllum?

Reglan er sú að allir svari öllum boðum þrátt fyrir að beðið sé um sérhæfðt björgunarfólk (t.d. undanfara eða vélsleðafólk).

Mjög oft er rík þörf á aðstoð í byrjun útkalls eða í útkallinu sjálfu og ætti t.d. vant fjallafólk að mæta þegar beðið er um undanfara. Það er því ekki úr vegi að mæta ef þú metur að þú getir komið að gagni. Þú sendir þá boð í síma 112 um að þú ætlir að mæta, t.d. M1645 ef þú ætlar að mæta kl. 16:45. Þú getur einnig svarað GM1745 ef þú getur mætt kl. 17:45 og loks ME ef þú getur alls ekki mætt. Reglan er hins vegar alltaf sú að allir svari öllum boðum og geri grein fyrir mætingu eða fjarveru.

Hvað geri ég ef ég man ekki kóðana?

Þú svarar engu að síður í 112 og orðar fyrirætlun þína með eigin orðum. Svo rennirðu yfir þessar leiðbeiningar eftir útkallið og rifjar upp hvernig kóðarnir eru.

Get ég sent skilaboð til bækistöðvar með svörunarkóða?

Já, það er hægt. Skilaboðin koma þá á eftir kóðunum sem líta þá t.d. svona út:

GM1330 tharf 30 minutna fyrirvara

Þessi texti hefur ekki áhrif á hvernig kóðinn er túlkaður, en hann þjónar þeim tilgangi að koma skilaboðum áleiðis til bækistöðvar.

Athugaðu þó að þetta er bara vettvangur fyrir einföld upplýsingaboð sem tengjast fyrirætlan viðkomandi hvað varðar þátttöku í útkallinu. Öllum áríðandi upplýsingum er varða yfirstandandi útkall skal koma áleiðis til bækistöðvar í símanúmer HSSR, 577-1212, eða í símanúmer bakvaktar, 841-3030.

Ef ekki er útkall í gangi, þá er best að senda upplýsingar til bækistöðvar með tölvupósti í netfangið utkall@hssr.is.

Get ég sent SMS í gegnum vefi eins og ja.is?

Nei, það verður að senda SMS í gegnum síma. Vefsendingar virka ekki inn í nýja kerfið.