Upplýsingaskjár
Úr Kvika HSSR
Upplýsingaskjárinn er tengdur Raspberry Pi tölvu sem keyrir í „kiosk“-ham. Hún sýnir vefsíðu í fullri stærð án nokkurra vafrastjórntækja.
Ef eitthvað kemur uppá á að vera nóg að taka hana úr sambandi til að slökkva á henni og stinga aftur í samband. Hún á þá að verða komin aftur upp með vefsíðuna eftir rétt rúma mínútu (um 75 sek).
Vélin hefur nafnið „upplysingar“. Til að eiga við hugbúnaðinn þarf að tengja við hana lyklaborð og færa sig yfir á „virtual console“ eða inn í Xorg með því að ýta á „Ctrl-Alt-F1“ eða „-F7“. Kiosk-kjárinn sjálfur er á F8.
Tölvan er sett upp samkvæmt leiðbeiningum á Uppsetning á Raspberry Pi. Vefslóðin á upplýsingaskjáinn er http://112.svorun.net/upplysingar/?team=9571