D4H
D4H er viðburðakerfi HSSR. Þar eru allir viðburðir (æfingar, fundir, ferðir, skemmtanir o.s.frv.) skráðir.
Stjórnendur útkallshópa bera ábyrgð á að skrá viðburði sinna hópa og bjóða í þá.
D4H þarfnast smá aðhalds sem er í höndum starfshópsins D4H umsjón
Efnisyfirlit
Ég er almennur björgunarmaður. Hvað á ég að gera?
Skráðu þig inn minnst einu sinni á vikufresti og þá ættu engir viðburðir að fara framhjá þér. Þú skráir þig í eða úr viðburðum með því að velja „Yes“ eða „No“, hvort sem er á forsíðunni („Dashboard“) eða á síðu viðburðarins. :-)
Á þeirri síðarnefndu sérðu upplýsingar um viðburðinn („Pre-Plan“) og hverjir eru búnir að mæta.
Athugaðu að umsjónarmenn viðburða nota D4H til að meta mætingu og skipuleggja viðburðina samkvæmt því. Þess vegna er mikilvægt að skrá þáttöku (og ekki síður fjarvist) snemma.
Ég er stjórnandi hóps. Hvað á ég að gera?
Á haustin
- Skráning viðburða
- Þegar dagskráin er komin á hreint á haustin skráir þú viðburði vetrarins. Bíddu með að bjóða fólki í viðburðina fyrstu vikurnar þar til hópaskipan er komin á hreint. Ástæðan er sú að annars þarf að bjóða nýjum meðlimum sérstaklega á hvern viðburð, sem er bara óþarfa vinna fyrir ykkur.
- Uppfærsla hópa
- Fyrstu vikurnar er fólk að ákveða hvar það ætlar að beina starfskröftum sínum og nýliðarnir að finna sér stað í starfinu. Þegar það er komið sendirðu póst á hssr.d4h@google.com með nöfnum þeirra sem eru að bætast í hópinn og þeirra sem á að taka út.
- Boðun á viðburði
- Nú geturðu óhrædd(ur) boðið öllu liðinu á viðburði vetrarins.
Eftir hvern viðburð
- Frágangur á viðburðinum
- Tryggðu að ábyrgðarmaður æfingarinnar viti hvernig hann gengur frá viðburði í D4H.
Ég er að sjá um viðburð. Hvað á ég að gera?
Fyrir viðburð í dagskrá
- Uppfærðu lýsinguna
- Farðu á síðu viðburðarins og kannaðu lýsinguna (í „Pre-Plan“, „Descriptions“ reiturinn á að vera tómur). Ef þú hefur uppfærðar eða betri upplýsingar sem gagnast mögulegum eða væntalegum þáttakendum skalltu smella á „Update Details“ í efra hægra horni síðunnar og bættu við nánari lýsingu á viðburðinum ef við á í „Pre-Plan“ reitinn. Smelltu svo á „FINISHED“ til að ljúka við að breyta.
Fyrir viðburð utan dagskrár
- Skráðu viðburðinn
- Ef viðburður er ekki á dagskrá þarf að búa hann til.
Eftir viðburðinn
- Gakktu frá viðburðinum.
- Þegar viðburðurinn er búinn þarf að ganga frá honum með því að fara yfir mætingu og skrifa stutta samantekt.