Fjallamennska

Úr Kvika HSSR
Útgáfa frá 5. október 2015 kl. 11:34 eftir Tinni (Spjall | framlög)

(breyting) ←Fyrri útgáfa | Núverandi útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Stökkva á: flakk, leita

Námskeið

Í kaflanum hér að neðan eru efnisatriðin sem tekin eru fyrir í Fjallamennskunámskeiðum HSSR. Þau eru kennd á tveimur námskeiðum:

Í Björgunarskóla Slysavarnarfélagsins Landsbjargar eru þessi námskeið kennd með eilítið ólíku sniði, þ.e. þar eru einnig kenndar bergtryggingar og broddaganga (sem eru tekin fyrir á sér námskeiðum í HSSR).

Þar að auki er við Björgunarskólann kennt Fagnámskeið í fjallamennsku en þar er farið töluvert dýpra í þessi efnisatriði.

Efnisatriði

Öryggi á fjöllum
Fjallamennska er í eðli sínu hættuleg og þótt hægt sé að ná nokkru öryggi með þeim verkfærum, tækni og þekkingu sem kynnt eru hér að neðan er nauðsynlegt að þekkja til þeirra hætta sem að kunna að steðja, hvernig tryggja megi öryggis og (sem reynist mörgum ákaflega erfitt) hvenær snúa skuli við.
Ísöxin
Ísöxin er hið gagnlegasta tól. Hana má nota sem staf til stuðnings, til að höggva sér spor í hálan klaka, til að hífa sig upp þegar lítið er um höldur og svo til að stöðva bremsa göngumann ef hann rennur af stað.
Broddaganga
Broddar gera annars ó- eða illfær svæði auðveld yfirferðar. Hins vegar þarf að huga vel að beitingu þeirra. Það mikla grip sem þeir gefa er tvíeggja blað og getur valdið meiðslum ef ekki er rétt að farið.
Hnútar
Línur eru notaðar í margvíslegum tilgangi á fjöllum og er þá nauðsynlegt að þekkja nokkra gagnlega hnúta nægilega vel svo hægt sé að hnýta þá hratt og örugglega í erfiðum aðstæðum.
Gengið í línu
Ein gagnsemi lína er til trygginar meðlima í gönguhópi. Þá tengja sig allir við eina línu og tryggja hvort annað ef einhver kynni að falla í sprungu eða renna niður hlíð.
Bergtryggingar
Bergtryggingar eru ákaflega þægilegar enda auðveldara að sjá styrk þeirra og við höfum mikið traust á hörðu berginu. Þó verður að gæta þess að setja bergtryggingar vel upp svo þær svari því trausti sem við leggjum á þær.
Snjótryggingar
Stundum er ekkert til taks nema snjórinn til að tryggja í. Það er svosum allt í lagi því það má tryggja í glettilega lausan snjó. Því þéttari sem hann er því öruggari verður samsskonar trygging þó.
Ístryggingar
Ís er, þrátt fyrir að vera brothættur, hið ágætasta efni til að tryggja í. Algengt er að nota ísskrúfur en einnig má v-þræða og leika ýmsar kúnstir.
Hlaupandi tryggingar
Sig
Niðurganga er oft ekki síður erfið en uppgangan og því er ágætt að hafa möguleikann á að síga einfaldlega niður bratta eða hamra.
Júmm
Leiðsluklifur
Ferli klifurs
Félagabjörgun
Ferðamennska á jökli
Sprungubjörgun