Upplýsingaskjár
Upplýsingaskjárinn er tengdur Raspberry Pi tölvu sem keyrir í „kiosk“-ham. Hún sýnir vefsíðu í fullri stærð án nokkurra vafrastjórntækja.
Tölvan var sett upp eftir þessum leiðbeingum: HOWTO: Boot your Raspberry Pi into a fullscreen browser kiosk. Vefslóðin á upplýsingaskjáinn er http://112.svorun.net/upplysingar/?team=9571 .
Chromium er ekki lengur í boði fyrir Debian Jessie svo það þarf að setja hann sérstaklega upp. Sjá Running the latest Chromium 45 on Debian Jessie on your Raspberry Pi 2.
Ef eitthvað kemur uppá á að vera nóg að taka hana úr sambandi til að slökkva á henni og stinga aftur í samband. Hún á þá að verða komin aftur upp með vefsíðuna eftir rétt rúma mínútu (um 75 sek).
Vélin hefur nafnið „upplysingar“. Til að eiga við hugbúnaðinn þarf að tengja við hana lyklaborð og færa sig yfir á „virtual console“ eða inn í Xorg með því að ýta á „Ctrl-Alt-F1“ eða „-F7“. Kiosk-kjárinn sjálfur er á F8.