Nýliðaraun
Úr Kvika HSSR
Nýliðaraun - Efnisatriði
Fyrsta hjálp
- Mat á aðstæðum (fyrsti þríhyrningur)
- Að eiga samskipti við hinn slasaða / ástandsgreining (VÁSE)
- Færa sjúkrasögu (ÓLSENA)
- Líkamsskoðun
- Fylgjast með lífsmörkum
- Spelkun (óstöðugur áverki)
- Stífing (stöðugur áverki)
- Sáraumbúnaður
- Umbúnaður sjúklings með mögulega hryggáverka
- Frágangur sjúklings í börur
- Faglegt viðmót
Rötun
- Taka stefnu og ganga eftir áttavita
- Staðsetja sig á korti
- Kortalestur (leiðaval)
- Gefa upp staðsetningu á GPS tæki
- Setja inn stefnu á GPS tæki og fylgja
- Snjóflóðaleit
- Ýlapróf
- Samskiptapróf
- Ákvörðun/afmörkun leitarsvæðis
- Ýlaleit
- Stangarleit/lína
- V-mokstur
Tryggingar og sig
- Útbúa einfalda snjótryggingu (deadman, hæll eða öxi)
- Útbúa tryggingu með snjópolla
- Setja upp siglínu í tryggingu
- Síga á einföldu
- Síga á tvöföldu
- Útbúa snjósæti
- Broddar og axir
- Fara í brodda
- Ganga upp brekku flatfóta
- Ganga upp brekku á tábroddum
- Ganga niður brekkur flatfóta
- Ganga niður brekku á tábroddum
- Ganga í hliðarhalla
- Ísaxarbremsa (á baki m lappir á undan)
- Ísaxarbremsa (á baki m haus á undan)
- Ísaxarbremsa (á maga með haus á undan)
- Höggva spor
- Lína og línuganga
- Jafna bil í línu
- Binda endamenn í línu
- Binda miðjumenn í línu
- Hnútar: Áttuhnútur (bundinn og bakþræddur), fiðrildi, hestahnútur
- Gengið frá línu eftir notkun
- Línuganga
- Þekkja viðbrögð við falli úr línu
Leit
- Þekkja aðgerðafasa leitar og helstu hugtök ss þekju, SÞP, UPL, o.s.frv.
- Kunna skil á regndansi (og þekju)
- Samskipti
- Þekkja undirstöðuatriði talstöðvasamskipta (notkun kallmerkja í samskiptum, velja rás, þekkja neyðarhnapp o.s.frv.)