Gátlisti fyrir umsjónarfólk viðburða

Úr Kvika HSSR
Útgáfa frá 3. nóvember 2014 kl. 13:29 eftir Tinni (Spjall | framlög)

(breyting) ←Fyrri útgáfa | Núverandi útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Stökkva á: flakk, leita

Þú ætlar þér sumsé að sjá um viðburð í HSSR? Frábært! Það er afar lítið mál en þó nokkrir hlutir sem gott er að hafa í huga sem ekki eru kenndir í nýliðaprógramminu og kunna að hafa breyst frá því þú bjóst slíkt til síðast.

Hér er því stuttur gátlisti fyrir umsjónarfólk viðburða:

Settu viðburðinn inn á D4H
Þetta er oft gott fyrsta skref svo fólk hafi stað til á skrá sig á viðburðinn þegar þú auglýsir hann.
Kynntu viðburðinn á einhverjum góðum vettvangi.
Flestir viðburðir eru skipulagðir af útkallshópunum svo það er góður vettvangur til að finna áhugasama. Eins eru skemmtihópar eins og Klifurveggshópurinn og Fjallahjólahópurinn en þeir eru báðir með Facebook síður.
Pantaðu bíl ef þörf er á.
Sendu póst á stjórnendur Bílahóps með minnst viku fyrirvara. Ef útlit er fyrir að það þurfi marga bíla er gott að tala við þá fyrr, annars vegar til að kanna hvort þeir séu í húsi og til að gefa meiri tíma til að manna bílana.
Skipulegðu viðburðinn
Já, þetta hljómar sem kjánalegt skref en góður viðburður þarf alúð. Kannski ekki mikla en það er skemmtilegra að gera þetta ekki á síðustu metrunum. Oft er gaman að vera með einhver props sem auðvelt er að redda ... ef maður er með einn dag í viðbót. Gefðu þér því smá tíma vel fyrir viðburðinn til að skipuleggja hvað þið ætlið að gera.
Skemmtið ykkur!
Það er gaman þegar það er gaman.
Gangið frá viðburðinum í D4H
Það þarf að fara yfir mætingu og skrifa smá samantekt. Skellið því inn og þá er þetta komið!